 |
|
Tuesday, February 21, 2006
Let goodly sin and sunshine in
Things behind the sun Nick Drake
Please beware of them that stare They'll only smile to see you while Your time away And once you've seen what they have been To win the earth just won't seem worth Your night or your day Who'll hear what I say. Look around you find the ground Is not so far from where you are But not too wise For down below they never grow They're always tired and charms are hired From out of their eyes Never surprise.
Take your time and you'll be fine And say a prayer for people there Who live on the floor And if you see what's meant to be Don't name the day or try to say It happened before.
Don't be shy you learn to fly And see the sun when day is done If only you see Just what you are beneath a star That came to stay one rainy day In autumn for free Yes, be what you'll be. Please beware of them that stare They'll only smile to see you while Your time away And once you've seen what they have been To win the earth just won't seem worth Your night or your day Who'll hear what I say.
Open up the broken cup Let goodly sin and sunshine in Yes that's today. And open wide the hymns you hide You find reknown while people frown At things that you say But say what you'll say About the farmers and the fun And the things behind the sun And the people round your head Who say everything's been said And the movement in your brain Sends you out into the rain.
Please beware of them that stare They'll only smile to see you while Your time away And once you've seen what they have been To win the earth just won't seem worth Your night or your day Who'll hear what I say. Look around you find the ground Is not so far from where you are But not too wise For down below they never grow They're always tired and charms are hired From out of their eyes Never surprise.
Take your time and you'll be fine And say a prayer for people there Who live on the floor And if you see what's meant to be Don't name the day or try to say It happened before.
Don't be shy you learn to fly And see the sun when day is done If only you see Just what you are beneath a star That came to stay one rainy day In autumn for free Yes, be what you'll be. Please beware of them that stare They'll only smile to see you while Your time away And once you've seen what they have been To win the earth just won't seem worth Your night or your day Who'll hear what I say.
Open up the broken cup Let goodly sin and sunshine in Yes that's today. And open wide the hymns you hide You find reknown while people frown At things that you say But say what you'll say About the farmers and the fun And the things behind the sun And the people round your head Who say everything's been said And the movement in your brain Sends you out into the rain.
Posted at 05:13 pm by rosin
Permalink
Saturday, December 10, 2005
Love is real, real is love...
Love John Lennon
Love is real, real is love Love is feeling, feeling love Love is wanting to be loved Love is touch, touch is love Love is reaching, reaching love Love is asking to be loved
Love is you You and me Love is knowing We can be
Love is free, free is love Love is living, living love Love is needing to be loved
Hversu fallegt getur eitt lag verið... ****
Posted at 05:48 am by rosin
Permalink
Monday, October 03, 2005
Ride it on
Mazzy Star
Ride it on baby
Into my view
Ride it on baby
Into your side
Ride it on baby
Just like you used to do
Did you want me to love you
Well, I'm just here for the call
And you said that you're so low
Well, I won't really do you any harm
Won't you ride it on baby
Just like you used to do
There's no love that you're over feeling
And you still want to be with me
But you're leaving like you said that you would
I'm waiting for the call
And you love like you always say now
But you know it won't do you any harm
Ride it on baby
Just like you said that you would
Oh then ride it on baby
Just like you know it's understood
Ride it on baby
It's still into your view
Ride it on baby
I only want to be with you
I'm dreaming that you're going far
And you lie, take and whine
Won't you ride it on baby
But you're so heavy for the price
Ride it on baby
Just like you said that you would
Þau eru bara alveg rosalega flott þessi tvö. Hef sett þau áður hingað og mun setja þau aftur. ****
Posted at 05:25 pm by rosin
Permalink
Friday, September 16, 2005
I will follow you into the dark...
I Will Follow You Into The Dark
Death Cab For Cutie
Love of mine some day you will die
But I'll be close behind
I'll follow you into the dark
No blinding light or tunnels to gates of white
Just our hands clasped so tight
Waiting for the hint of a spark
If heaven and hell decide
That they both are satisfied
Illuminate the no's on their vacancy signs
If there's no one beside you
When your soul embarks
Then I'll follow you into the dark
In Catholic school as vicious as Roman rule
I got my knuckles brusied by a lady in black
And I held my toungue as she told me
"Son fear is the heart of love"
So I never went back
If heaven and hell decide
That they both are satisfied
Illuminate the no's on their vacancy signs
If there's no one beside you
When your soul embarks
Then I'll follow you into the dark
You and me have seen everything to see
From Bangcock to Calgary
And the soles of your shoes are all worn down
The time for sleep is now
It's nothing to cry about
Cause we'll hold each other soon
The blackest of rooms
If heaven and hell decide
That they both are satisfied
Illuminate the no's on their vacancy signs
If there's no one beside you
When your soul embarks
Then I'll follow you into the dark
Then I'll follow you into the dark

Óvenjulega venjulegt kassagítarslag. Þetta er falleg melodía með svörtum
texta en voðalega ljúfur inn við beinið. Lag af Plans, nýjustu plötu DCFC sem
kom út núna í lok ágúst. ***
Posted at 07:57 am by rosin
Permalink
Þögnin þýðir ekki að ég sé ekki að hlusta....
Posted at 07:14 am by rosin
Permalink
Friday, August 05, 2005
Somewhere over the rainbow
Eva Cassidy Eva Cassidy lifði stutt en náði á þeim tíma að hafa áhrif á ótrúlega marga með rödd sinni sem lifir enn í dag. Þessi grein er tileinkuð henni.
Eva Cassidy fæddist 2. febrúar 1963 í Maryland, Oxon Hill. Listahæfileikar hennar komu snemma í ljós en hún byrjaði að syngja um leið og hún byrjaði að tala og teikna þegar hún var tveggja ára.
Eva ólst upp í mikilli tónlistarfjölskyldu og faðir hennar tók snemma eftir því hversu hæfileikaríkur tónlistarmaður hún var. Hann kenndi henni að spila á gítar þegar hún var 9 ára og þá var ekki aftur snúið. Það hvatti hann til að stofna lítið fjölskylduband þar sem bróðir Evu, Dan Cassidy var einnig fær tónlistarmaður. Áhugi Evu á tónlist kom þó ekki fyrir tilstilli föður hennar heldur var það ástríða hennar frá upphafi.
Í skóla var Eva í tónlist og listum þegar hún gat. Henni langaði að verða listamaður og tónlistin var því til hliðar fyrst um sinn. Á unglingsárunum söng hún í hljómsveit með bandi sem kallaðist Stonehenge ásamt því að vera heilt sumar að koma fram með bróður hennar Dan í kántríbandi. Um helgar fór hún á söfn og lærði meira um uppáhalds listamennina sína. Eva var einnig mikið náttúrubarn og fór reglulega í hjólreiðatúra og tjaldaði í Ohio Canal. Hún bar mikla virðingu fyrir lífinu og náttúrunni.
Árið 1986 var Eva beðin um að syngja inn á plötu hjá rokkhljómsveit og var það pródúserinn Chris Biondo sem hafði heyrt að hún hefði ótrúlega hæfileika. Næstu átta mánuðina var Eva í upptökuverinu hans að syngja, ekki með feril í huga, heldur að æfa sig og hafa gaman af. 1990 var fyrsta "Evu Cassidy" hljómsveitin skipuð og fór að koma fram. Eva var þá feimin og átti í fyrstu mjög erfitt með að vera á sviði. Þegar hún áttaði sig á því hve mikið hún gaf fólkinu með tónlistinni og rödd sinni fór hún ósjálfrátt að gefa meira af sér.
Eftir að hafa spilað á Blues Alley 1991 við miklar vinsældir spilaði Chris Biondo upptökur með Evu fyrir Chuck Brown sem heillaðist strax af söngkonunni. 1992 tóku þau upp dúetta blúsdisk "The other side" og 1993 fóru þau að koma fram saman, þar á meðal á Blues Alley. Þessar uppákomur voru eitt af því sem Eva mat mikils og var þakklát fyrir að fá að upplifa. Þau báru mikla virðingu fyrir hvort öðru sem listamenn og náðu því að skila stemningunni vel til áhorfendanna.
Seinna árið 1993 þurfti Eva að fara í aðgerð út af illkynja húðfrumubreytingum. Hún gafst ekki upp þrátt fyrir veikindin og tók upp plötu árið 1994 og kom svo aftur fram á Blues Alley árið 1996. Í þetta skiptið voru tónleikarnir teknir upp og settir á geislaplötu sem varð síðar lýst sem einni bestu "live" plötu áratugarins í Bandaríkjunum. Ef maður hlustar á plötuna heyrir maður auðveldlega ástæðuna, hún er einfaldlega sungin á ótrúlegan og snilldarlegan hátt, svo ekki sé minnst á frábæran óaðfinnanlegan hljóðfæraleik.
Um sumarið 1996 veiktist Eva mikið. Hún hafði verið að vinna við ýmis verkefni tengd myndlist en þurfti að hætta að vinna vegna veikindanna. Hún var með illkynja krabbamein og var henni greint frá að hún ætti 3-5 mánuði eftir lifað. Í september voru haldnir tónleikar til heiðurs Evu þar sem mismunandi listamenn komu fram. Eva söng sjálf með Chuck Brown í lokin og tók lagið What a wonderful world svo eftirminnilega. Það var í síðasta skipti sem hún söng fyrir almenning. Eva Cassidy lést 2. nóvember 1996, aðeins 33 ára gömul.
Eva Cassidy var með rödd sem þú heyrir í útvarpinu og vilt samstundis vita meira um. Hún gefur sig í hverju einasta lagi með frábærri túlkun og röddinni fylgir mikil tilfinning. Eva Cassidy var einnig einstök persóna, ávallt niðri á jörðinni, ávallt hógvær og hafði í raun ekki hugmynd um það hversu góður tónlistarmaður hún var.
Flest af því sem til er af upptökum með henni er gefið út eftir lát hennar enda ætlaði hún aldrei að græða á tónlistinni. Hún lífgaði gömul lög við á sinn einstaka hátt. Hún söng flestar gerðir tónlistar, mest blús, djass, þjóðlagatónlist og svo popptónlist. Í mörgum lögum leitar hún í gamla listamenn eins og Billie Holiday og fleiri dívur en alltaf hljóma þau öðruvísi. Eva Cassidy þurfti ekki stórt band bakvið sig, eða miklar stúdíóuppfærslur. Eina sem þurfti var rödd hennar og gítarinn, það gerir tónlistarmenn sanna líkt og Eva Cassidy var.
- HRS
  
Posted at 08:25 am by rosin
Permalink
LSF
Kasabian
I'm on it, get on it
The troops are on fire!
You know I need it, much closer
I'm treading just a little more
Step on it, electronic
The troops are on fire!
I'm much deeper, a sleeper
Waiting for the final trip
Come on it, get on it
I'm carving thru a letter bomb
I need it, like potions
These drugs are just an hour away
Come on it, electronic
A polyphonic prostitute, the motor's on fire
Messiah for the animals
Ahhh, oh come on!
We got our backs to the wall!
Ah!
Get on!
And watch out!
Sayin', "You're gonna kill us all!"
I’m on it, get on it
The troops are on fire!
You know i need it, much closer
I’m treading just a little more
Step on it, electronic
The troops are on fire! I’m much deeper, a sleeper
Messiah for the animals
Ahhh, oh come on
Say yeh, we got our backs to the wall
Get on, and watch out
Ah, Before you kill us all
Ah, oh come on
Say we got our backs to the wall
Get on, and watch out
Ah, before you kill us all
Ahhh...
Getnaðarlegir drengir hér á ferð. Þeir verða skemmtilegri með hverju laginu því oftar sem maður hlustar og eru eins ferskir og appelsína. ***
Posted at 07:33 am by rosin
Permalink
Wednesday, July 27, 2005
I put a spell on you
- ævi Ninu Simone
Ég gerði mér ekki alveg grein fyrir því hvað ég fór út í þegar ég ákvað að rita niður ævi Ninu Simone. Ævi hennar var allt í senn, flókin, viðburðarík og átakamikil. En ég gafst ekki upp og hér er útkoman.
Nina Simone eða að skírnarnafni Eunice Waymon, fæddist 21. febrúar 1933 í Tryon, Norður Carolinu og var sjötta af átta systkinum. Alin upp við gospel og trúartónlist, byrjaði hún frá unga aldri að spila á píanó. Þegar hún var aðeins 10 ára spilaði hún fyrist opinberlega á píanóið, en það var á bókasafni. Þann dag fékk hún ekki aðeins að upplifa lof áhorfenda heldur einnig kynþáttafordóma, þar sem foreldrar hennar voru færð úr fremstu röð svo að hvítir menn gætu fengið sætin þeirra. Þetta atvik var mjög líklega ein af ástæðunum fyrir því að Eunice átti síðar eftir að berjast gegn kynþáttafordómum af miklum móð.
Árið 1950 gafst Eunice tækifæri til þess að halda áfram í tónlistarnámi með styrktaraðilum í heimbæ hennar. Tónlistarskólinn Juilliard varð fyrir valinu en henni var svo síðar hafnað með námsstyrk til áframhaldandi háskólanáms, sennilega vegna þess að hún var svört. Árið 1954 má svo segja að líf hennar hafi tekið óvænta stefnu þegar hún fékk starf á bar í Atlantic City vegan þess að fjölskyldu hennar vantaði pening. Í upphafi hafði hún ætlað sér að vera píanisti en bareigandinn sagði henni að hún þyrfti að syngja líka. Hún var því óvart komin í skemmtanabransann og tók þá upp nafnið Nina Simone.
Þar með var ferill Ninu Simone hafinn og fljótlega var hún farin að spila á klúbbum og börum víða í Philadelphiu. Hún vakti víðsvegar athygli og fékk hún í kjölfarið að taka upp 14 lög hjá hjá Bethlehem Records árið 1957. Upptökurnar eru enn í dag til marks um það hversu hreinan hæfileika hún hafði sem píanóleikari, söngvari, útsetjari og lagahöfundur. Fyrsta plata Ninu var 11 laga platan Jazz as played in an Exclusive Side Street Club,og kom út 1958. Eitt laganna á þeirri plötu átti eftir að gera Ninu Simone fræga, söngleikjalagið I loves You, Porgy sem sló í gegn árið 1959 og seldist í milljónum eintaka. Fólk gat ekki gengið framhjá hæfileikum hennar lengur, Simone var rísandi stjarna, kom fram í Town Hall, Carnegie Hall og á Newport Jazz Festival meðal annars.
Vegna velgengi fyrstu plötu hennar fékk hún fljótt samning við Colpix (Columbia Pictures Records) sem hún var hjá þangað til árið 1964. Þar tók Nina Simone upp alls 10 plötur, 6 stúdíóunnar og fjórar "live". Árið 1961 giftist Nina Simone manni að nafni Andy Stroud og ári seinna eignuðust þau dóttirina Lisa Celeste Stroud.
Árið 1964 hóf Nina samstarf hjá Philips og gaf út þar 7 plötur á þrem árum. Eitt af fyrstu lögum sem hún tók upp þar var Don't Let Me Be Misunderstood sem varð vinsælt. Árið 1965, gaf hún svo út I Put a Spell on You sem er eitt af vinsælli lögum Simone fyrr og síðar. Á þessu tímabili samdi hún einnig sitt fyrsta lag til að mótmæla kynþáttafordóumum Mississippi Goddam! en það samdi hún útaf morðinu á Medgar Evers í Mississippi (júní 1963) og morðinu á fjórum blökkubörnum í Alabama (September 1963).
Árið 1966 skipti Nina yfir til RCA og var þar þangað til 1974. Maðurinn hennar sá um samningana og var einnig umboðsmaður hennar. Frá sumrinu 1968 þangað til enda ársins 1969, voru allar upptökur Ninu Simone pródúseraðar af manninum hennar, þó svo að gera má ráð fyrir að það væri í raun Nina sjálf sem stjórnaði flestu. Hjá RCA komu níu plötur og mörg vinsælustu lög Ninu Simone eins og lagið úr söngleiknum Hárinu Ain't Got No/I Got Life, og útgáfa hennar af To Love Somebody eftir Bee Gees.
Árið 1969 tók lífið nýja stefnu hjá Ninu en vegna kynþáttafordóma ákvað hún að flytja úr landi og fara til Afríku heimaland síns, auk þess sem hún ferðaðist vítt og dreyft um heiminn og kom fram. Árið 1970 skildi hún við eiginmann sinn og hóf að starfa sjálfstætt og vinna með bróður hennar Sam Waymon. Árið 1978 var Nina handtekin (en fljótt sleppt úr varðhaldi) fyrir skattsvik eða óborgaða skatta. Þrátt fyrir mótmælahug Ninu hélt hún áfram að gefa út plötur, oftar en ekki með lögum sem innihéldu pólitískan áróður eða skilaboð.
1987 komst Nina aftur í sviðsljósið með My Baby Just Cares For Me sem hafði þá þegar sigrað Evópu en Nina hélt áfram að koma fram þangað til hún lést. Á síðustu árum ævinnar var Nina margsinnis heiðruð og kom hún fram á ýmsum hátíðum, meðal annars á jasshátíð í Frakklandi 1997, tónlistarhátíð í Grikklandi 1998 og Guinnes Blues Festival í Dublin 1999. Þá var hún einnig heiðursgestur 1998 í áttræðisafmæli Nelson Mandela og 1999 fékk hún heiðursverðlaun fyrir gjöfulan tónlistarferil veitt í Dublin. Árið 2000 fékk hún einnig þrenn önnur heiðursverðlaun.
Nina Simone lést 21. apríl 2003 sjötug að aldri, eftir langvarandi baráttu við sjúkdóm. Ösku hennar var dreyft að hennar ósk vítt um Afríku. Í jarðarförinni í Frakklandi var hennar ekki aðeins minnst sem miklum listamanni, heldur einnig sem frelsishetju sem barðist fyrir réttlæti dekkra manna. Skilaboðin frá ríkisstjórninni í Suður-Afríku voru að hún hefði verið hluti af sögu landsins, það hryggði þau mjög að heyra fregnir af láti hennar og að þau myndu syrgja hana með miklum söknuði.
Nina Simone átti gjöfulan feril og gaf út alls 42 plötur á 36 árum. Alveg frá upphafi hafði Simone sungið djass, gospel, klassík, þjóðlagatónlist, blús, popp, og lög frá óperum og söngleikjum. Þótt hún hafi verið mest þekkt sem djasssöngkona vildi hún sjálf meina að það væri ekki rétt því það væri meira soul og blús í hennar flutningi en djass. Þeir sem kannast við lög Simone vita að röddin er einstök, breytist stundum frá fallegri og mjúkri yfir í hráa og beiska. Hún stoppar, öskrar, endurtekur og hvíslar orðin ef henni dettur í hug. Hún nær að heilla hlustandann með þessari tilfinningalegu og góðu túlkun sem gerir hana að einstökum listamanni með stórt hjarta.
“You want to know what my real hope is? I hope the music will make you make love a little bit. Then you get back to the business in hand—politics.” Nina Simone
- HRS

http://www.boscarol.com/nina/html/manual/bio.html
http://www.ninasimone.com/nina.html
Posted at 10:03 am by rosin
Permalink
Saturday, July 16, 2005
Will make you hide, your foolish pride..
A sentimental blues
Ray Charles
A sentimental blues
Will worry you
And make you do
Things that you
Wouldn't do
Only when you
Hear these blues
A sentimental blues
Will wet your eye
You wonder why
You heave a sigh
You start to cry
Each time that you
Hear these blues
Sigh, sigh, sigh
And drool
Cry, cry, cry
You fool
Yes, I know that it's cool
A sentimental blues
Deep down inside
Will make you hide
Your foolish pride
A sentimental blues
Will make you lose
Your mind
Sigh, sigh, sigh
And drool
Cry, cry, cry
You fool
Yes, I know that it's cool
A sentimental blues
Deep down inside
Will make you hide
Your foolish pride
A sentimental blues
Will make you lose
Your mind

Horfði á myndina fyrir stuttu og hún hafði mikil áhrif á mig. Það er ástæðan fyrir því að ég skelli einu lagi hér með þessum snillingi. ***
Posted at 02:14 pm by rosin
Permalink
Tuesday, June 28, 2005
I miss you so much boy...
Rocket brothers
Kashmir
I miss you so much boy
will we be coming on again
don't ever loose your ropes
this man is hanging by the ends
I owe you so much time
yes you might say it isn't like that at all
but now it's coming back to you
these open moments that I blew
rocket brothers crack and burst
if they can't meet upon the verge
of breaking into seperate parts
that was not written in our cards
now you got someone to protect
someone you cannot reject
I miss you so much boy
but I was buried in the mines
I found it hard to stop
you found me very hard to find
but now that you've made way
I'd better tie together these ropes again
and throw the times right back to you
and all the chances that I blew
rocket brothers crack and burst
if they can't meet upon the verge
of breaking into seperate parts
that was not written in our cards
those rocket brothers on the verge
we should be careful' cause it could burst
and we're not lonely anymore
lonely as we were before
and now there is someone to protect
someone you cannot reject
something I will not neglect
No...
Áts hvað þetta er frábært og flott. Þau eru sko mörg til viðbótar með disse drenge.. helt fantastisk. ****
Posted at 11:41 am by rosin
Permalink
|
|
|
 |
|
 |